þá
er komið að seinni helginni, ferð sem við hefðum
betur sleppt. Ætluðum að koma Hafrúnu á
óvart á afmælisdaginn hennar þann 3 mars,
lögðum af stað kl. 5 um morguninn og ætluðum
að ná þeim við morgunverðinn en urðum
að snúa við vegna ófærðar, eftir
hádegi var orðið gott veður og lögðum
við þá aftur af stað.
Um kvöldið fórum við í sleðaferð
sem endaði með því að Guðni lenti á
tré í miðri brekku og slasaðist þónokkuð,
slapp óbrotinn en með blæðandi nýra,
marið lunga og lifur, 3 vöðva slitna í öxl,
aumur í mjöðm, baki, háls, olnboga og úrnlið,
eiginlega heppin að vera á lífi.
|